
Lýsing: Blá blóm í júlí-ágúst. Fjölær. Skerið niður 1-2 sinnum yfir sumarið áður en blómin springa út. Hengið upp og látið þorna á dimmum og hlýjum stað. Blöð og blóm eru notuð í krydd og te. Það er hægt að nota Ísóp ferskan í salat, en hann er sterkur á bragðið.
Hæð: 30-60 sm.
Aðstæður: Harðgerð. Vex best á sólríkum og skjólsælum stað í léttum og næringarríkum jarðvegi. Fjölær.