Lýsing: Hvít blóm í maí. Lítil, sæt og bragðgóð aldin þroskast í ágúst-september. Þau eru fölgul með rauðum sólroða. Aldin geymast ekki lengi í kæli. Blómstrar um miðjan maí. Ekki sjálffrjóvgandi, en góður frjógjafi. Góð með ´Coloree De Juliet / Broket Juliet´og´Herrepære´.
Hæð: 2-5 m. Hægt að halda niðri með klippingu.
Aðstæður: Harðgerðasta perusortin. Best á sólríkum stað í skjóli við vegg eða í köldu gróðurhúsi. Þrífst best í næringarríkum og vel framræstum jarðvegi.
Annað: Sænskt yrki.