Lýsing: Vaxkennd, klukkulaga hvít blóm í júní. Sæt, ljósblá ber í meðalstærð í júlí-ágúst. Dökkgrænt lauf. Rauðir haustlitir. Sjálffrjóvgandi, en það er gott að planta fleiri tegundum sem blómstra á sama tíma til að fá betri uppskeru.
Hæð: 0,9-1,2 m. á hæð og breidd.
Aðstæður: Þarf sólríkan og skjólsælan vaxtarstað. Þolir hálfskugga, en fær þá minni uppskeru. Þrífst best í súrum, næringarríkum, meðalrökum eða rökum og vel framræstum jarðvegi. Þolir illa að þorna.