Saga Garðykjustöðvar Ingibjargar Sigmundsdóttur
Garðyrkjustöð Ingibjargar Sigmundsdóttur er í eigu hjónanna Ingibjargar Sigmundsdóttur og Hreins Kristóferssonar. Grunninn að garðykjustöðinni lögðu foreldrar Ingibjargar, þau Sigmundur K. Guðmundsson og Kristín Jónsdóttir, en þau reistu 100 fermetra gróðurhús í bakgarðinum hjá sér árið 1953.
Garðyrkjustöð Sigmundar var rekin að Heiðmörk 31 til ársins 1980, en þá keyptu Ingibjörg og Hreinn reksturinn og tóku formlega við í janúar 1981. Um var að ræða tvö gróðurhús, samtals um 320 fermetra, auk svæðis undir vermireiti. Framleiðslan var þá eingöngu sumarblóm og grænmeti.
Fljótlega var ráðist í uppbyggingu og endurbætur á stöðinni og árið 1984 keyptu hjónin garðyrkjustöð að Heiðmörk 38. Þar var byggður 150 fermetra söluskáli og sett upp rúmgott sölusvæði fyrir garðplöntusölu. Við kaupin jukust möguleikar á fjölbreytni í framleiðslu. Úrval garðplantna var stóraukið og pottablómaræktun tekin upp. Garðplöntuframleiðslan samanstendur nú af ræktun sumarblóma, trjáa, runna, rósa, fjölærra blóma og matjurta og úrvalið er alltaf að aukast.
Árið 1991 bættist við reksturinn ein elsta garðyrkjustöð landsins, Grímsstaðir. Þar er um að ræða 1.100 fermetra gróðurhús auk stórs útisvæðis undir trjá- og sumarblómaræktun. Síðan bættist við Snæfell, þá Rósakot, Lindarbrekka og Akur. Garðyrkjustöð Ingibjargar byggir á grunni 7 eldri garðyrkjustöðva og er nú samtals 6.000 fermetrar undir gleri, auk 4.000 fermetra í plasthúsum og ræktunarsvæði með vermireitum og sölusvæði. Til að byrja með voru stöðugildin í Garðyrkjustöðinni um 1 1/2 ársverk. Nú starfa hér um 10 manns í fullu starfi allt árið og annað eins bætist við yfir sumarvertíðina.
Þar sem hluti garðplönturæktunar er árstíðarbundinn er breytt um framleiðslutegund um mitt ár. Frá janúar til júlí eru ræktuð sumarblóm, en frá júlí til desember eru húsin nýtt undir græðlingatöku og jólastjörnuræktun. Þá eru laukblóm s.s. túlipanar, páskaliljur og hýasintur einnig þáttur í framleiðslunni.
Afurðir garðyrkjustöðvarinnar eru seldar í smásölu að Heiðmörk 38 og í heildsölu vítt og breitt um landið.