Klifurplöntur
Klifurplöntur
Tré og Runnar
Rósir
Rósir
Fjölær
Fjölært
Pottablóm

Ávaxtatré og -runnar

Barrtré og sígrænir runnar

Lauffellandi tré og runnar

 

Ávaxtatré

 

 

 

 

 

 

 

Best er að velja sólríkan og skjólsælan stað undir ávaxtatré til að fá uppskeru. Einnig er hægt að rækta margar sortir í óupphituðum gróðurhúsum, en þá þarf að hafa í huga hversu stórt yrkið verður og hvort hægt sé að halda því niðri með klippingu. Ávaxtatré gefa meira af sér í óupphituðum gróðurhúsum.

Jarðvegur þarf að vera frjór og ekki of rakur. Sendinn jarðvegur hentar vel. Um leið og það er orðið frostlaust ætti að bera áburð á trén. Ef vökvun er óregluleg geta komið sprungur í aldin, sérstaklega plómur og kirsuber. Ef lítið er um flugur er gott að frjóvga með pensli nokkrum sinnum yfir blómgunartímann. Ef aldin standa mjög þétt þarf að grisja þau.

 
       

Eplatré

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Harðgerð ávaxtatré sem þola sæmilega seltu. Fæst eplatré eru sjálffrjóvgandi, yfirleitt þarf tvö yrki og þá er enn betra að hafa þrjú. Einstaka eru hálfsjálffrjóvgandi og geta gefið uppskeru ein, en eru betri með öðrum.

Blómgunartími getur verið misjafn og því verður að velja saman tré sem blómstra á svipuðum tíma. Flest eplayrki blómstra 28. maí - 12. júní. Sum yrki blómstra annað hvert ár, en það eru minni líkur á því ef þau eru ekki látin bera of mörg epli. Ef aldin eru of þétt er gott að grisja þau þannig að það standi eftir eitt aldin á hverjum klasa.

Um leið og epli fara að detta eru þau þroskuð. Óþroskuð aldin er erfitt að losa frá trénu. Best er að tína bara sæmilega þroskuð aldin og tína oftar. Snúðu aldin af frekar en að slíta og láttu stilkana fylgja með aldinunum. Ef epli eru of lengi á trénu geta þau ofþroskast og þá verða þau mjölkennd. Rauð epli fá ekki rauðan lit ef þau fá ekki næga birtu. Fyrsta uppskera er oft eftir 2-5 ár.

Gott er að klippa eplatrén vel sama ár og þau eru gróðursett. Það er ekki nauðsynlegt að klippa eplatré, en þau þola mikla klippingu. Best er að klippa 1/3 af ársvexti seinnipart sumars og síðan aftur að vori. Gefa skal áburð snemma vors. Sýrustig á að vera í kringum 6-7.

Epli geymast best við 3-5°C í götóttum plastpoka.
Ekki geyma epli og kartöflur á sama stað.

 
Eplatré
Fjölskyldutré
Malus domestica


3 yrki eru ágrædd á sama stofn. Sjálffrjóvgandi.

NÝTT
Epli
´Alice´

Malus domestica
´Alice´

Harðgert yrki. Þroskar aldin í október. Eplin eru meðalstór og hringlótt. Sæt og fersk.

Epli
´Carrol´
Malus domestica
´Carrol´

Harðgert og duglegt kanadískt yrki. Blómstrar í maí. Aldin eru ljósrauð, 80-90 gr. og  þroskast í sept/okt.

Epli
´Collina´
Malus domestica ´Collina´

Safarík, gulgræn aldin með rauðu þroskast í september.

NÝTT
Epli
´Eva Lotta´
Malus domestica
´Eva Lotta´

Auðvelt tré í ræktun, en best er að velja sólríkan og skjólgóðan stað til að fá meiri uppskeru. Eplin eru gul með rauðu og þroskast í október. Safarík og bragðgóð epli sem er auðvelt að tína af trénu þegar þau eru tilbúin til átu.

Epli
´Såvstaholm´
Malus domestica ´Såvstaholm´

Meðalstór, safarík, gulgræn aldin með rauðum strípum sólarmegin þroskast í september. Såvstaholm er góður frjóvgari fyrir önnur yrki og er sænskt að uppruna.

NÝTT
Epli
´Silva´
Malus domestica ´Silva´

Meðalstór til stór gulgræn epli með roðablettum. Milt, sætvínsúrt, fínlegt og þægilegt bragð. Aldin þroskast í október. Sæmilega harðgert yrki sem ber ríkulega uppskeru.

NÝTT
Epli
´Sunrise´
Malus domestica ´Sunrise´

Blómgast frá miðjum maí. Mikil uppskera. Þroskar aldin í sept-okt. Meðalstór til stór, sætsúr, safarík og bragðgóð epli. Gult eða hvítt hýði öðru megin og rautt sólarmegin (um 50% rautt og 50% gult eða hvítt).

NÝTT
Epli
´Topaz´
Malus domestica ´Topaz´

Nokkuð harðgert tré sem þrífst best á sólríkum stað. Blómstrar hvítum blómum í apríl til maí. Meðalstór gulgræn epli með rauðum strípum. Safarík og bragðgóð eplin þroskast í október.

Epli
´Transparente Blanche´
Malus domestica ´Transparente Blanche´

Hálfsjálffrjóvgandi, getur þroskað aldin sjálft, en er betra með öðru yrki. Nokkuð harðgert yrki frá Rússlandi. Góður frjógjafi. Meðalstór gul aldin þroskast í september. Safaríkt með sætsúru bragði. 

     
Perutré

Hæð 10-12 m. en hægt að halda niðri með klippingu. Ekki mjög harðgerð, en þrífst í skjóli utandyra og í óupphituðu gróðurhúsi. Sjaldan sjálffrjóvgandi. Blómstrar fyrri hlutann í maí.

 
Perur
´Herrapera´
Pyrus communis ´Herrepære´

Sæmilega harðgert tré sem fær ágætis uppskeru á sólríkum og skjólgóðum stað. Ekki sjálffrjóvgandi. Meðalstór, hringlótt aldin þroskast í okt-nóv. Perurnar eru grænleitar, sætar og safaríkar.

Perur
´Skånsk sukkerpære´
Pyrus communis ´Skånsk sukkerpære´

Ekki sjálffrjóvgandi, en góður frjógjafi. Lítil, sæt og bragðgóð aldin þroskast í ágúst. Harðgerðasta perusortin. Blómstar um miðjan maí. Góð með Coloree De Juliet.

 
Perur
´Coloree De Juliet´
(Broket Juliet)
Pyrus communis ´Coloree De Juliet´

Hargert yrki, upprunið í Belgiu. Mikið ræktað í Svíþjóð og Noregi. 6-7 cm braðgóð aldin þroskast í september. Ekki sjálffrjóvgandi, en góður frjógjafi. Góð með Skånsk sukkerpære.

Perur
´Grev Moltke´
Pyrus communis
´Grev Moltke´

Þriggja litninga og getur ekki frjóvgað annað tré. Því þarf þrjú til að fá aldin á öll trén. Aldin eru grængul með roða í sólarátt og þroskast um miðjan október. Best í skjóli við vegg. Þolir smá frost. Danskt yrki sem er algeng í Noregi og Danmörku. 

Perur
´Ingeborg´
Pyrus communis ´Ingeborg´

Þarf sólríkan og hlýjan vaxtarstað. Næringarríkan jarðveg og gott skjól. Ekki sjálffrjóvgandi. Þarf annað yrki til frjóvgunar.

   
Plómutré

Hæð 5-10 m og hægt að halda niðri með klippingu. Sæmilega harðgerð. Oft sjálffrjóvgandi. Vegna stærðar getur verið gott að grisja aldin þannig að það verði 3-5 cm á milli þeirra.

 
Plómur
´Czar´
Prunus domestica
´Czar´

Sjálffrjóvgandi og góður frjógjafi. Blá, meðalstór aldin þroskast  í september. Sæmilega harðgert breskt yrki. Hægvaxta.

Plómur
´Mirabelle Nancy´
Prunus domestica
´Mirabelle Nancy´

Tré sem þrífst best á sólríkum stað í frjórri mold. Hvít blóm í maí. Þroskar hringlótt gul aldin sem líkjast apríkósum í október. Sætt bragð með smá apríkósukeim. Ber ríkulegan ávöxt.

Plómur
´Opal´
Prunus domestica
´Opal´

Sjálffrjóvgandi. Hvít blóm í maí. Rauð-blá aldin þroskast í september. Sæmilega harðgert yrki frá Svíþjóð. Þarf sólríkan og skjólsælan stað til að gefa af sér.

     
Sætkirsuber/
Fuglakirsuber

Tréin verða allt að 10 m. með mikla krónu, en hægt að halda niðri með klippingu. Yfirleitt sjálffrjóvgandi. Sæmilega harðgerð og ekki eins frostþolin og súrkirsuber, en þrífast þokkalega í skjólsælum görðum.

 
Sætkirsuber
´Stella´
Prunus avium
´Stella´

Sjálffrjóvgandi, góður frjógjafi. Dimmrauð, stór og safarík aldin þroskast í ágúst. Meðalharðgert. Kanadískt yrki.

Sætkirsuber
´Sunburst´
Prunus avium ´Sunburst´

Sjálffrjóvgandi og góður frjóvgari fyrir önnur yrki. Blómstrar mikið. Stór, dökkrauð ber þroskast í ágúst. Sæt og safarík. Kanadískt yrki. Lofar góðu.

       
Ferskjutré


Kröftugt tré eða runni sem hentar í kalt gróðurhús.

 

NÝTT
Ferskjur
´Revita´

Prunus persica
´Revita´
Ljósbleik blóm í maí. Þroskar aldin í september. Stórar, bragðsgóðar, gulgrænar ferskjur með dökkrauðum roða og kremhvítu safaríku aldinkjöti.  
     
Fíkjutré /
Fíkjuviðartré

Fíkjutré bera aldin sem nefnast fíkjur. Þær eru sætar á bragðið með mörgum smáum fræjum innan í. Þegar fíkjur eru þurrkaðar kallast þær gráfíkjur. Til gamans má nefna að fíkjuviðarlauf eru oft notuð í teikningum sem sýna Adam og Evu í aldingarðinum.

 

NÝTT
Fíkjur
´Smyrna´

Ficus Carica
´Smyrna´

Stór runni eða tré sem þrífst best á sólríkum og skjólgóðum stað. Sjálffrjóvgandi. Aldin eru perulaga og rauð að innan. Þau verða fjólublá eða brún þegar þau þroskast, en þangað til eru þau græn.  
     
Kiwi

Vafningsjurt sem hentar í óupphituð gróðurhús eða á sérstaklega góðum stað utandyra.

 
Kiwi
´Geneva´
(kvenplanta)
Actinidia arguta ´Geneva´

Blaðfalleg vafningsjurt. Þolir hálfskugga. Þarf karlplöntu til að þroska aldin.

Kiwi
´Jumbo´
(kvenplanta)
Actinidia arguta
´Jumbo´

Blaðfalleg vafningsjurt. Þolir hálfskugga. Þarf karlplöntu til að þroska aldin.

Kiwi
´Weiki´
(karlplanta)
Actinidia arguta
´Weiki´

Blaðfalleg vafningsjurt. Þolir hálfskugga. Þarf að planta með kvenplöntu til að þroska aldin.

     
Vínber/
Vínviður

Þarf grind til að klifra eftir. Hentar í garðskála eða frostfrí gróðurhús.

 
Vínber
´Vroege van der laan´

Vitis
´Vroege van der laan´

Græn ber  
Vínber
´Eddy´s Blue Wonder´

Vitis
´Eddy´s Blue Wonder´

Blá ber  
Vínber
´Muscat blue´

Vitis
´Muscat blue´

Blá ber  
       
Berjarunnar      
       
Bláber

70-100 cm hár berjarunni. 

 
Bláber
´Blue Crop´
Vaccinium coryimbosum

Blásvört, stór og sæt ber í september. Ekki sjálffrjóvgandi. Þarf annan frjógjafa.

Bláber
´Chippewa´
Vaccinium coryimbosum ´Chippewa´

Sjálffrjóvgandi berjarunni. Blásvört, stór og sæt ber í september.

Bláber
´Goldtraube 71´
Vaccinium coryimbosum
´Goldtraube 71´

Sjálffrjóvgandi berjarunni. Blásvört, stór og sæt ber í september.

Hindber
´Veten´
Rubus idaeus
´Veten´

Smáþyrnóttur, harðgerður runni. Þolir hálfskugga en þarf sólríkan og frjósaman vaxtastað til að þroska góða uppskeru. Rauð, ílöng ber. Bragðmikil. Norskt yrki.

Sólber
Ribes nigrum

1-1,5 m berjarunni. Berin svört og
C-vítamín rík. Harðgerður

Rifsber
'Röd Hollandsk'
Ribes spicatum
´Röd Hollandsk´

1,5-2 m berjarunni. Rauð ber. Harðgerður.

 
Stikilsber
'Hinnomaki'
Ribes uva-crispa
'Hinnomaki'

Fágætur berjarunni. Gefur uppskeru í góðu skjóli og sól. Frekar harðgerður.

 

Plómur af ´Opal´


Uppskera af einu tré úti í garði í Hveragerði árið 2010

Smelltu á myndina
til að fara efst á síðuna

plomur.opal

Barrtré og sígrænir runnar

Lauffellandi tré og runnar

Matjurtir

 

[Fara á forsíðu]

Sumarblóm
Sumarblóm
Maturtir
Matjurtir
Skógarplöntur
Skógarplöntur
Garðskálaplötur
Opið alla daga frá kl. 10 - 12 og frá kl. 13 - 18
Garðyrkjustöð Ingibjargar | Heiðmörk 38 | 810 Hveragerði | s. 483 4800 | fax 483 4005 | senda tölvupóst